Djöfull er gott að eiga eina rólega helgi heima...... kallinn
uppí bústað og ég og hamsturinn alein í kotinu. Það voru nú
samt ekkert mikil afköst hjá mér...ég ætlaði að vera voða dugleg að
þrífa allt hátt og lágt en kom því nú ekki í verk. Var líka að
vinna laugardagskvöld og sunnudagsmorgun á sólbaðstofunni þannig að
ég er svona eiginlega löglega afsökuð hmmmm!!
Er að pæla í að fara norður helgina 17-19 nóv eða helgina eftir
það, er það ekki bara málið hmmmm maður verður víst að plana allt
svona langt fram í framtíðina!
Mig vantar skeggmódel býður sig einhver fram? Það væri mjög vel
þegið...