06.05.2007 17:23:58 / Jenný
»
21.03.2007 21:59:32 / Jenný
Jæja það er komin nýr meðlimur í fjölskylduna í bili...lítill
loðinn pommeranien hundur ; ) Algjör bolti.. hann er í pössun
hjá okkur en ég á hugsanlega ekkert eftir að vilja skila honum
:/
Eg og Elvar erum mikið að pæla hvort við eigum ekki að fara að
selja íbúðina okkar fljótlega og stækka við okkur. íbúðin okkar er
búin að hækka þónokkuð síðan við keyptum hana. Við þurfum hvort sem
er að stækka við okkur einhverntímann þannig að það er alveg eins
gott að gera það áður en markaðurinn hrynur og vera í íbúð sem
rúmar okkur í framtíðinni.
Helgin var góð..ég var í fríi alla helgina og við vinkonurnar
fórum á langþráð stelpudjamm! Eg og Tinna elduðum okkur dýrindis
mexicanska máltíð mmm ég er ennþá með vatn í munninum yfir þessu
úff sjúklega gott! Svo kom Elva seinna um kvöldið og við brunuðum
beint heim til Binna sem var eitthvað voðalega stressaður að komast
niðrí bæ kl 00:15 og pantaði leigubíl fyrir allt liðið en við
stelpurnar náðum að sannfæra hann um að leifa okkur að vera þarna
aðeins lengur..þannig að ég Tinna, Elva og Svandís sátum þarna til
að ganga tvö! Bærinn var same old same old..prufuðum reyndar nýjan
stað Domo (gamli felix) Búið að gera hann frekar flott upp en
tónlistin þarna var frekar súr. Eníhú svo kom ég heim og skellti
mér í sturtu vá hvað það er mikill munur að vakna ferskur daginn
eftir mæli eindregið með því...vottaði ekki fyrir þynnku daginn
eftir ég þakka reyndar líka lýsisgúlpanum sem eg fékk mér áður en
ég byrjaði að drekka!!
»
28.02.2007 18:28:48 / Jenný
A ekkert að fara að hlýna eða hvað..... það er alltaf glampandi
sól úti og þegar maður horfir útum gluggan þá kemst maður í nettan
sumarfíling svo er bara nístingskuldi og frost úti brrrrr
Svo eru allir í kringum mig að fara eitthvað út uhuhuhju ég bara
á frónni í kuldagalla not fair!! Við erum samt farin að plana ferð
til Mexico næsta sumar þannig að ég hef nú eitthvað til að hlakka
til... Jábbs svo er Febrúar bara búinn á morgun og það styttist í
páska jibbí....ég er farin að þrá smá frí ekki gaman til lengdar að
vera að vinna alla daga, allar helgar og tvisvar í viku frá
10 til 23 uhh vill einhver vorkenna mér
En girls girls girls það er komið alltof langt síðan að við
höfum tekið eitthvað skrall saman er ekki spurning um að fara að
plana eitthvað gott djamm áður en ég breytist í gamla bitra
kellingu
»
25.02.2007 17:05:38 / Jenný
Já komið sooooldið langt síðan ég hef bloggað eitthvað.....ekki
mikið fréttnæmt svosum sem ég hef að segja! Janúar og febrúar eru
nú bara búnir að flúga framhjá mér. I janúar kláruðum við Elvar
loksins eldhúsið hjá okkur, skiptum um borðplötur á innréttingunni
og settum flísar á eldhúsið engin smá breyting svo vorum við líka
búin að opna úr eldhúsinu inní stofu þannig að þetta er orðið alveg
virkilega kosy hjá okkur!
Febrúar er nú bara eiginlega að
verða búinn en 10 feb skelltum við hjúin okkur á þorrablót fyrir
norðan, virkilega skemmtilegt ball....gleymdi samt alveg að dansa
ég var svo mikið að spjalla við fólk
Eftir ballið skelltum við
okkur í party til Jóhanns, ég og Anna Margrét vorum svona
klukkutíma á leiðinni því við stoppuðum svona tuttugu sinnum á
leiðinni og pældum í því hvernig við kæmust fljótar heim til Helenu
svo Anna gæti skipt um skó....frekar glataðar! En annars fínasta
ball og skemmtun!! Fyrir utan ælupestina sem herjaði á mig daginn
eftir og plús þynnkan ekki skemmtileg samblanda!
Systir mín var í heimsókn hjá mér um helgina og við skelltum
okkur á x-factor. Okkur var plantað beint fyrir aftan dómarana
þannig að við vorum víst bara í beinni hehe hafði samt ekki hugmynd
um að við værum í mynd því myndavélin var svo langt í burtu. En
þetta var mjög skemmtileg upplifun gaman að sjá það
sjónvarpsáhorfendur sjá ekki!
»
19.01.2007 22:49:51 / Jenný
Já hva eru jólin búin......ég nenni ekkert orðið lengur að
skrifa neitt hérna inná ohh var t.d. ekki þessi típa sem hélt uppi
dagbók á mínum yngri árum.........en já ætla ekki alveg örugglega
allir á þorrablótið fyrir norðan.... ég læt mig allaveganna ekki
vanta!
»
29.12.2006 23:17:25 / Jenný
Jább ég er búin að hafa það aðeins of gott um jólin ég held að
ég hafi farið í mesta lagi fimm sinnum útur húsi yfir öll jólin og
það var þá bara til að hlaupa yfir í næsta hús eða uppí bíl! Annars
er ég bara búin að liggja eins og klessa og hafa það alltof
gott!!
En jólin voru auðvitað æðisleg....er í fríi frá 22 des til 3 jan
ljúúúúft. Kom í bæinn í morgun og það var nú bara pínu gott að koma
heim þó svo að ég líti alltaf á skagaströnd sem mitt heimili....ég
fæ sjálfsagt heimþrá á morgun.
Gleðilega hátið annars og nýtt ár
»
08.12.2006 10:57:08 / Jenný
»
19.11.2006 19:34:37 / Jenný
Loksins komið dass af snjó......alltaf jafn fyndið að sjá þessa
blessuðu reykvíkinga þegar það kemur snjór.....skautandi á
sumardekkjunum, stelpur á pinnahælum flúgandi á hausinn niðrí bæ
hihi bara fyndið! Eg verð að játa að það er komin þvílíkur
jólafiðringur í mig og þessi snjór er nú ekki ábætandi, mig langar
bara að fara að byrja að skreyta en ég hugsa að ég reyni að hemja
mig og bíða aðeins með það hhhmmm...
Er alveg harðákveðin í því að fara norður næstu helgi og það er
eins gott að það verði ekki brjálað veður.....ég ÆTLA að
fara!!!!!!!! Mamma og pabbi voru að taka baðherbergið niðri í gegn
og keyptu sér sturtuklefa með nuddi og gufu, svo eru einhver kósý
ljós í henni og útvarp úff get ekki beðið eftir að prófa hana.
Helgin var afskaplega róleg og þægileg hjá mér...var bara heima að
hafa það kosy. Fór og keypti mér nýjan skáp í ganginn hjá
mér....geggjaður, kláraði líka að mála þannig að nú á bara eftir að
flísaleggja eldhúsið og það verður gert fyrir jól takk fyrir
»
03.11.2006 00:10:25 / Jenný
ohh já skrapp í kringluna með Elvu og Örnu Maríu sætustu......og
þvílík orkusuga sem það er að fara þangað úff ég var byrjuð að
þorna í augunum og sjá allt í móðu bara vesen!!!! En já gat
allaveganna keypt mér buxur og verð oftar að taka Örnu Maríu með
mér að versla, hún hélt svoleiðis stemmingunni uppi í
mátunarklefanum með fögrum söng, svo eignaðist hún líka nýja
vinkonu í oasis.....var frekar þögul samt gínan hmmmm!
Eg og Elva ætlum að skella okkur á Nasa annað kvöld vííííhí það
verður bara gaman og drukkið og dansað og líklegast dansað aðeins
meira jebb...
»
30.10.2006 20:30:11 / Jenný
Djöfull er gott að eiga eina rólega helgi heima...... kallinn
uppí bústað og ég og hamsturinn alein í kotinu. Það voru nú
samt ekkert mikil afköst hjá mér...ég ætlaði að vera voða dugleg að
þrífa allt hátt og lágt en kom því nú ekki í verk. Var líka að
vinna laugardagskvöld og sunnudagsmorgun á sólbaðstofunni þannig að
ég er svona eiginlega löglega afsökuð hmmmm!!
Er að pæla í að fara norður helgina 17-19 nóv eða helgina eftir
það, er það ekki bara málið hmmmm maður verður víst að plana allt
svona langt fram í framtíðina!
Mig vantar skeggmódel býður sig einhver fram? Það væri mjög vel
þegið...
»
23.10.2006 20:43:56 / Jenný
Ohhh pirrandi ég var búin að skrifa geðveikt langa færslu og hún
hvarf!!!
Mánudagur til mæðu hverjum datt það í hug mér fynnst mánudagar
svo fínir......þarf ekki að fara í skólann fyrr en kl eitt, geðveik
dagskrá í sjónvarpinu og maður er alveg endurnærður eftir
helgina.....jabb ég kíkti á smá skrall með stelpunum á laugardaginn
mjög svo langt síðan það hefur skeð en já við skelltum okkur aðeins
á hressó, ég sá reyndar alveg furðulítið af norðlendingum þar ætli
þeir hafi ekki allir verið fyrir norðan?? Af einhverjum ástæðum
fékk ég þetta geðveika hláturskast á miðju dansgólfinu get
enganveginn munað afhverju man bara að ég gat ekki
hætt......skrítið en já svo fór gamla bara snemma heim maður er
orðin svo stabíll! Takk æðislega fyrir skemmtilegt kvöld
stelpur
»
15.10.2006 23:53:56 / Jenný
Enn ein vinnuhelgin að baki ehh......! Fór í skýrn á laugardaginn
hjá bróðir hans Elvars! 'I kirkjunni þegar allir eru sestir niður
þá byrjar presturinn á því að bjóða okkur velkomin og eitthvað bla
bla svo segjir hann að ef að feður samþyggja þá vill hann byrja á
því að gifta foreldrana og allir bara hhhhöööööö ó mæ god það vissi
semsagt enginn af þessu nema þau og það byrjuðu nottla allir að
grenja þar á meðal ég össs.......átti mjög erfitt með mig en já
þetta var mjög skemmtilegt surprice!! Eg er gjörsamlega komin með
uppí kok á að mála og að reyna að finna réttan lit arg þetta er svo
leiðinlegt en sem betur fer fer þessu nú að ljúka og íbúðin er
orðin þvílíkt flott!!! En já þemadagar í skólanum á morgun er að
fara að læra á gítar!!! Þetta verður fjör!!!
»
06.10.2006 00:40:38 / Jenný
Hér með lýsi ég eftir svörtu hettupeysunni minni með v
hálsmáli.......man síðast eftir henni einhverntíman í
sumar......hennar er sárt saknað....
Annars bara allt gott að frétta..ætla loksins að gera eitthvað
annað en að vinna um helgina!!!! Er að fara á Anthony Pappa á
nasa á morgun og svo í ammæli á laugardaginn, er svo boðið í skýrn
á sunnudaginn.....nóg að gera!!!
Annars er mér farið að drullulanga norður.......hvað segjiði um
að við skellum okkur í hópferð norður og gerum allt kreisí
»
28.09.2006 23:36:08 / Jenný
tölvan mín er í hönki
hún er í viðgerð
dem you tölvan hennar Tinnu
»
18.09.2006 10:32:02 / Jenný
Þá er enn ein vinnuhelgin búin........sem
betur fer er ég í fríi næstu ég myndi mygla ef ég þyrfti að
vinna fjórðu helgina í röð!!!!!! En þá er enn einn
hausverkurinn hvað á ég að gera um helgina.....er samt að
pæla í að fara norður. Elvar er að fara vestur að smala næstu
og þarnæstu helgi, held ég ætli frekar að fara með honum
þarnæstu því þá verður meira af liði þarna!
»
Síður:
1 2 3 ...
7